Færsluflokkur: Menning og listir

Hljómsveitin Óli fink árið er 1973

Kannast einhver við Hljómsveit sem kallaði sig fyrir  Óli fink?  Starfaði aðeins á árinu 1973.   Því miður hef ég gleymt nöfnum þessara manna fyrir utan að píanóleikarin var kallaður Valur.  Á bassann spilað Þorleifur Guðjónsson.

Vantar nafnið á trommaranum,  sem gerðist lögregluþjónn eftir upplausn bandsins.

Að lokum vantar mig nafnið á  sólógítarleikaranum.  Sjálfur var ég söngvari þessa bands. 

Stórmerkilegir atburðir áttu sér stað í stuttri sögu þessa bands sem verður að skrá í sögu Hljómsveita hér á Íslandi.

Þeyr sem geta gefið upplýsingar um nöfn þessara manna endilega látið mig vita, skrifa í gestabókina mína.

Kv.Pallielís


Nú fer að koma að stóru stundinni hjá mér!

Nú fer að koma að stóru stundinni hjá mér!

Ég er að undirbúa mína fyrstu tónleika eftir 35 ára stopp.Verið er að ræða um hvort ég muni koma fram einn eða með hljómsveit mér til aðstoðar. Það má því segja að ég sé faðmaður af  tónaflæði þessa dagana,he he.

Það má segja að síðustu tónleikar í atvinnumennsku sem ég var með í,hafi verið í Alþíðuhúsinu í Hafnarfyrði.Þessir tónleikar náði ég ekki að klára vega sérstaklegrar atvika sem áttu sér stað nokkrum dögum innan.Hafði verið á Æfingu með öðru bandi,á þessari æfingu fékk ég raflost við það að snerta samtímis mígrafon  og gítar með þeim afleiðingum að ég festist við græjurnar og fékk þetta líka rosalegt raflost.Ég var fluttur með sjúkrabíl á neyðarmótöku.Nokkrum dögum seinna var auglýst.Svarta maria verður með Rafmagnaða tónleika í Alþíðuhúsinu í Hf.

það er svo þegar að maður rennir skóm eftir nælonteppi til dæmis þá getur maður fengið smá rafstuð,Þetta kannast flestir við.

Ég var gítar og söngvari bandsins.Ég var með yfirvaraskegg á þessum tíma. Við byrjuðum að spila og þegar að ég snerti hljóðnemann þá gerðist það,ég fékk smá rafstuð þegar að yfirvaraskeggið snerti hljóðnemann.Ég hélt að ég væri að fá raflost aftur og gjörsamlega fór af göflunum.Sleit af mér gítarinn stökk fram á gólf og hljóp út.

Fólkið í salnum hélt að þetta væri hluti af atriðinu  og öskraði af hrifningu he he en ég kom bara aldrei aftur.

Seinna fór ég af landinu og bjó erlendis í 24 ár, svo það er langur tími á milli tónlista atriða hjá mér he.

Tónleikarnir verða auglýstir.hv Pallielis

  


Um bloggið

Páll Rúnar Elíson

Höfundur

Páll Rúnar Elíson
Páll Rúnar Elíson
  1. Pallielís.Tónlist og félagsmál eru mér efst í huga.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 4546 1102158206309 1597342714 30238650 2687965 n
  • Æfing í tónlistarherberginu mínu.
  • Björn Th  og  Palli Elís.
  • Þá er friðurinn búin,  Elín er kominn.
  • Björn Thoraresen og ég

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband